FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. JÚNÍ 2020

Heildarfjöldi greiddra gistinátta í maí síðastliðnum dróst saman um 89% samanborið við maí 2019. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 88% og um 86% á gistiheimilum. Þá var 84% fækkun á öðrum tegundum gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.). Ekki var hægt að áætla erlendar gistinætur á stöðum sem miðla gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 76.000 í maí en þær voru um 660.000 í sama mánuði árið áður. Um 87% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 66.000, en um 13% á erlenda gesti eða um 10.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 51.300, þar af 37.100 á hótelum. Gistinætur á öðrum tegundum gististaða voru um 24.000.

Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli náðist ekki að safna úrtaki fyrir framkvæmd landamærarannsóknar Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands í maí. Af þeim sökum reyndist ekki unnt að áætla fjölda gistinátta erlendra ferðamanna utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í maí, s.s. á stöðum sem miðla gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður, í bílum utan tjaldsvæða eða innandyra þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu. Ráðgert er að hefja áætlun á gistinóttum erlendra ferðamanna utan hefðbundinnar gistináttaskráningar að nýju þegar framkvæmd landamærarannsóknar kemst aftur í fyrra horf.

Í lok mars tóku mörg hótel þá ákvörðun að loka tímabundið og voru 47 hótel lokuð í maí en 75 hótel voru lokuð í apríl. Framboð gistirýmis minnkaði um 26,5% frá maí 2019, mælt í fjölda hótelherbergja, sem skýrist af lokunum hótela.

Herbergjanýting á hótelum í maí 2020 var 8,9% og dróst saman um 46,8 prósentustig frá fyrra ári.

Framboð og nýting hótelherbergja í maí
  Herbergjafjöldi á hótelum í maí Herbergjanýting hótela í maí
2019 2020 % 2019 2020 prst
Alls10.7317.888-26,5%55,7%8,9%-46,8
Höfuðborgarsvæði5.1293.269-36,3%66,6%5,3%-61,3
Suðurnes868677-22,0%53,1%5,1%-48,0
Vesturland og Vestfirðir855833-2,6%39,7%15,6%-24,1
Norðurland1.206996-17,4%42,5%14,5%-28,0
Austurland4414410,0%44,8%7,9%-36,9
Suðurland2.2321.672-25,1%47,0%11,1%-35,9

Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 37.100 sem er fækkun um 88% frá sama mánuði árið áður. Um 8,0% gistinátta á hótelum voru skráð á erlenda ferðamenn, eða 3.000, en gistinætur Íslendinga voru 34.100 eða 92,0%.

Gistinætur á hótelum
  Maí   Júní-maí  
2019 2020 % 2018-2019 2019-2020 %
Alls315.01537.094-884.441.7123.787.526-15
Höfuðborgarsvæði174.7508.780-952.525.2822.094.254-17
Suðurnes25.1261.528-94335.562330.891-1
Vesturland og Vestfirðir18.5357.236-61251.096215.869-14
Norðurland26.9247.651-72329.305281.888-14
Austurland10.4671.745-83107.632101.564-6
Suðurland59.21310.154-83892.835763.060-15
Þjóðerni
Íslendingar38.26634.138-11435.020397.488-9
Erlendir gestir276.7492.956-994.006.6923.390.038-15

Á 12 mánaða tímabili, frá júní 2019 til maí 2020, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 3.788.000 sem er 15% fækkun miðað við sama tímabil árið áður.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir árið 2020 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela, en fyrir þau eru bráðabirgðatölur fyrir maí 2020. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir í lok árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.