Greiddar gistinætur á öllum tegundum gististaða í maí síðastliðnum jukust um 104,0% samanborið við maí 2020. Þar af jukust gistinætur á hótelum um 173,6%, um 55,6% á gistiheimilum og um 51,6% á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.).
Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 181.800 í maí en þær voru um 89.100 í sama mánuði árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 60% gistinátta, eða 108.400, en erlendar 40% eða 73.400. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 135.700, þar af 102.800 á hótelum og 46.100 á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.)
Framboð hótelherbergja í maí dróst saman um 5,7% frá maí 2020. Herbergjanýting á hótelum var 25,7% og jókst um 16,7 prósentustig frá fyrra ári.
Gistinætur á hótelum í maí voru 102.800 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var aukningin á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinætur fóru úr 8.700 í 42.700 á milli ára.
Gistinætur, framboð og nýting á hótelum | ||||||
Maí | Júní - maí | |||||
Gistinætur á hótelum | 2020 | 2021 | % | 2019-2020 | 2020-2021 | % |
Alls | 37.583 | 102.843 | 174% | 3.788.015 | 914.526 | -76% |
Höfuðborgarsvæði | 8.667 | 42.719 | 393% | 2.094.141 | 290.992 | -86% |
Suðurnes | 1.905 | 7.032 | 269% | 331.268 | 75.110 | -77% |
Vesturland og Vestfirðir | 7.236 | 10.758 | 49% | 215.869 | 103.843 | -52% |
Norðurland | 7.651 | 14.966 | 96% | 281.888 | 178.594 | -37% |
Austurland | 1.745 | 2.395 | 37% | 101.564 | 49.482 | -51% |
Suðurland | 10.379 | 24.973 | 141% | 763.285 | 216.505 | -72% |
Þjóðerni | ||||||
Íslendingar | 34.351 | 64.668 | 88% | 397.701 | 609.280 | 53% |
Erlendir gestir | 3.232 | 38.175 | 1081% | 3.390.314 | 305.246 | -91% |
Herbergjafjöldi á hótelum í maí | Herbergjanýting hótela í maí | |||||
Framboð og nýting hótelherbergja | 2020 | 2021 | % | 2020 | 2021 | prst |
Alls | 7.881 | 7.434 | -6% | 9,0% | 25,7% | 16,7 |
Höfuðborgarsvæði | 3.262 | 2.628 | -19% | 5,2% | 31,3% | 26,1 |
Suðurnes | 677 | 751 | 11% | 6,6% | 18,4% | 11,8 |
Vesturland og Vestfirðir | 833 | 760 | -9% | 15,6% | 25,0% | 9,4 |
Norðurland | 996 | 1.066 | 7% | 14,5% | 25,6% | 11,1 |
Austurland | 441 | 300 | -32% | 7,9% | 15,1% | 7,2 |
Suðurland | 1.672 | 1.929 | 15% | 11,3% | 22,7% | 11,4 |
Gistinætur Íslendinga voru 64.700, eða 63% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 38.100 eða 37%.
Á tólf mánaða tímabili frá júní 2020 til maí 2021 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 914.500 sem er 76% fækkun frá sama tímabili ári áður. Mest var fækkunin á höfuðborgarsvæðinu eða 86%.
Þar sem landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands lá enn niðri í maí, vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli, var ekki unnt að áætla fjölda erlendra gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Eins og fyrr greinir komu fáar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli í veg fyrir öflun gagna fyrir landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands og liggur hún því niðri þar til aðstæður breytast. Á meðan eru ekki birtar áætlaðar tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir maí 2021. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.