FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. JÚNÍ 2022

Gistinætur á skráðum gististöðum voru um 557.700 í maí síðastliðnum samanborið við 190.100 árið áður. Gistinætur Íslendinga voru um 21% gistinátta eða um 119.700 og gistinætur erlendra ferðamanna voru um 438.000 (79%). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 423.900 (þar af 327.700 á hótelum) og um 133.800 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).

Skráðar gistinætur ferðamanna 2019-2022
Gistinætur á hótelum í maí voru 327.700 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur Íslendinga voru 69.600, eða 21% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur útlendinga voru 258.200 (79%).

Gistinætur á hótelum
Á tólf mánaða tímabili, frá júní 2021 til maí 2022, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 3.563.400 sem er tæplega fjórfalt meira en á sama tímabili árið áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.

Framboð og nýting hótelherbergja
Framboð hótelherbergja í maí jókst um 52% frá maí 2021. Herbergjanýting á hótelum var 53,7% og jókst um 28,2 prósentustig frá fyrra ári.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands fór aftur af stað í júní 2021 eftir nokkurt hlé. Í undirbúningi er að endurmeta aðferðafræði við áætlun gistinátta utan hefðbundins gistináttamarkaðar og er ráðgert að taka upp áætlun á fjölda gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður að nýju þegar endurmati er lokið.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir maí 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.