FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. JÚNÍ 2023

Skráðar gistinætur í maí hafa aldrei verið fleiri, eða 684.600 sem er um 23% aukning frá fyrra ári (557.700) og 13% aukning frá fyrra metári 2018 (605.800). Mest munar þar um aukningu í fjölda íslenskra gistinátta (73%), en fjölgunin í erlendum gistinóttum frá maí 2018 er 4%.

Gistinætur erlendra ferðamanna í maí voru um 81% gistinátta, eða um 551.500, sem er 26% aukning frá fyrra ári (438.300). Gistinætur Íslendinga voru um 133.100 sem er 11% aukning frá fyrra ári (119.600). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 530.000 og um 155.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Áætlaður fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í maí var um 110.000.

Gistinætur á hótelum í maí voru 410.500 sem er 25% aukning frá fyrra ári (328.900). Hótelgisting jókst í öllum landshlutum samanborið við maí 2022. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 333.200, eða 81% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 77.300 (19%). Gistinætur erlendra ferðamanna jukust um 29% og Íslendinga um 11%.

Framboð hótelherbergja í maí var svipað og í maí 2022, á meðan herbergjanýting á hótelum var 66,0% og jókst um 12,3 prósentustig frá fyrra ári.

Áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir maí og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 110.000. Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 1.000. Gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 35.000.

Unnið er að frágangi á talnaefni fyrir fjölda gistinátta fyrir alla gististaði árið 2022 og hefur sú uppfærsla verið sett á birtingaráætlun þann 12. júlí næstkomandi.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júní 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá júní 2020 til júní 2021 og má ætla að fjöldi erlendra gistinátta á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 og 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir maí 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.