Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 9,8% í maí 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 431.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 392.000 á sama tíma árið 2024. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Vesturlandi og Vestfjörðum, eða um 31,6%, en þar að auki var umtalsverð aukning á Suðurnesjum (14,8%). Töluverð aukning var einnig á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fjölgaði um 8,9%. Þá var einnig 7,2% vöxtur á Suðurlandi, 5,9% á Austurlandi og 4,2% á Norðurlandi. Alls fjölgaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega 17 þúsund og samanlagt um tæplega 22 þúsund í öðrum landshlutum.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru tæplega 373.000, eða 87% af gistinóttum hótela, og var það 9,6% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 58.000 sem var 11,4% meira en í maí árið 2024. Meginþorri erlendra ferðamanna var af bandarísku bergi brotinn, eða tæpur þriðjungur, og fjölgaði gistinóttum þeirra um 13,9% í maí. Á fyrstu fimm mánuðum ársins jukust gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum um 3,5%. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði hins vegar lítillega á sama tíma eða um 0,6%.
Framboð hótelherbergja jókst í öllum landshlutum nema á Austurlandi (-5,3%). Alls var aukningin 1,1% fyrir landið í heild og jókst framboðið mest á Norðurlandi (6,0%). Minni breytingar voru hins vegar í öðrum landshlutum þar sem herbergjum fjölgaði um 1,3% á Suðurlandi og 1,1% á Suðurnesjum. Nær óbreyttur fjöldi herbergja var á höfuðborgarsvæðinu (0,5%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (0,3%).
Herbergjanýting jókst sömuleiðis í öllum landshlutum nema á Norðurlandi (-0,3 prósentustig). Alls jókst nýting hótelherbergja um 5,5 prósentustig á landinu í heild sinni og var mestur vöxtur á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem nýtingin jókst um 14,9 prósentustig. Þá var einnig 10,9 prósentustiga aukning á Suðurnesjum. Á Austurlandi jókst herbergjanýting um 7,3 prósentustig, 4,9 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu og 4,3 prósentustig á Suðurlandi.
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í maí tæplega 670.000. Þetta var 9,6% aukning miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 611.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða rúmlega 527.000 (430.800 á hótelum og 96.600 á gistiheimilum) en rúmlega 142.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Unnið er að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur og eru því takmarkaðar upplýsingar birtar um fjölda gistinátta eftir þjóðerni. Fyrir vikið eru eingöngu birtar tölur um fjölda gistinátta eftir þjóðernum fyrir hótel. Þær tölur sem eru birtar eru bráðabirgðatölur og geta breyst við næstu mánaðarlegu birtingar. Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni er ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í maí.
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2025 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir maí 2025.