FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 22. DESEMBER 2020

Heildarfjöldi greiddra gistinátta í nóvember síðastliðnum dróst saman um 92% samanborið við nóvember 2019. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 93%, um 85% á gistiheimilum og um 88% á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.).

Þar sem landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands liggur niðri vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli var ekki unnt að áætla fjölda erlendra gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður en þær voru um 76.000 í nóvember í fyrra.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 44.000 í nóvember en þær voru um 553.000 í sama mánuði árið áður. Um 71% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 31.000, en um 29% á erlenda gesti eða um 13.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 33.000, þar af 24.300 á hótelum.

Framboð hótelherbergja á landinu minnkaði um 39,5% frá nóvember 2019. Herbergjanýting á hótelum var 8,3% og dróst saman um 49,6 prósentustig frá fyrra ári.

Mikill samdráttur í hótelgistingu var á milli ára í öllum landshlutum en mestur á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fækkaði úr 213.600 í 9.900 á milli ára eða um 95%. Á sama tíma dróst framboð hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu saman um 50% á milli ára um leið og herbergjanýting féll um 67,8 prósentustig á milli ára og var hún 8,3% í nóvember síðastliðnum.

Framboð og nýting hótelherbergja í nóvember
  Herbergjafjöldi á hótelum í nóvember Herbergjanýting hótela í nóvember
2019 2020 % 2019 2020 prst
Alls10.9486.625-39,5%57,9%8,3%-49,6
Höfuðborgarsvæði5.3952.685-50,2%76,2%8,3%-67,8
Suðurnes956784-18,0%47,3%17,6%-29,8
Vesturland og Vestfirðir765739-3,4%32,3%5,8%-26,4
Norðurland1.169702-39,9%28,3%5,1%-23,2
Austurland360150-58,3%20,2%9,7%-10,5
Suðurland2.3031.565-32,0%48,9%6,0%-42,9

Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum í nóvember drógust saman um 97% á milli ára en íslenskum gistinóttum fækkaði um 63%. Gistinætur Íslendinga voru 16.300, eða 67% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 8.000 eða 33%.

Gistinætur á hótelum
  Nóvember   Desember-nóvember  
2019 2020 % 2018-2019 2019-2020 %
Alls329.59824.305-934.528.3011.774.817-61
Höfuðborgarsvæði213.5719.888-952.508.800923.787-63
Suðurnes24.5575.414-78397.508137.094-66
Vesturland og Vestfirðir12.7562.221-83246.328126.895-48
Norðurland15.6791.596-90341.364175.354-49
Austurland3.520563-84117.21457.880-51
Suðurland59.5154.623-92917.087353.807-61
Þjóðerni
Íslendingar43.92616.304-63436.642551.29326
Erlendir gestir285.6728.001-974.091.6591.223.524-70

Á 12 mánaða tímabili, frá desember 2019 til nóvember 2020, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 1.775.000 sem er 61% fækkun miðað við sama tímabil árið áður.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Eins og fyrr greinir koma fáar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli í veg fyrir öflun gagna fyrir landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands og liggur hún því niðri þar til aðstæður breytast. Á meðan eru ekki birtar áætlaðar tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir árið 2020 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela en fyrir þær eru bráðabirgðatölur fyrir nóvember 2020. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.