Skráðar gistinætur í nóvember voru 524.000 sem er um 6% aukning frá nóvember 2022 (493.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 360.800 sem er 2% aukning samanborið við nóvember í fyrra.
Gistinætur erlendra ferðamanna í nóvember voru um 79% gistinátta, eða um 413.000, sem er 5% aukning frá fyrra ári (392.000). Gistinætur Íslendinga voru um 110.000 sem er 9% aukning frá nóvember í fyrra (101.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 411.000 og um 113.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.).
Gistinætur á hótelum í nóvember voru 360.800 eða 2% fleiri en á fyrra ári (353.500). Hótelgisting í nóvember dróst saman á höfuðborgarsvæðinu (-3%) og á Vesturlandi og Vestfjörðum (-3%) en jókst í öðrum landshlutum. Mest varð aukningin á Suðurlandi (17%).
Gistinætur erlendra ferðamanna voru 289.100, eða 80% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 71.700 (20%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 2,4% en gistinóttum Íslendinga um 1%.
Framboð hótelherbergja í nóvember jókst um 1% miðað við nóvember 2022. Á sama tíma jókst herbergjanýting á landinu um 0,8 prósentustig. Nýtingin á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 0,8 prósentustig á meðan aðrir landshlutar juku við sig. Mest varð aukningin á Suðurnesjunum eða um 6,4 prósentustig.
Áætlun á fjölda gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í nóvember, sem byggir á svörum erlendra ferðamanna úr landaærarannsókn Hagstofu Íslands og Ferðamálastofu, liggur ekki fyrir. Reiknað er með að þau gögn verði uppfærð samhliða næstu birtingu í lok janúar 2024.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir nóvember 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.