FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. DESEMBER 2024

Gistinætur á hótelum í nóvember voru tæplega 384.000 á landsvísu eða ríflega 6,4% fleiri en á sama tíma árið 2023 þegar þær voru 361.000. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum og var aukningin mest á Norðurlandi (17,4%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (10,9%) auk þess sem rúmlega 9,2% fjölgun var á gistinóttum á Suðurlandi. Þá fjölgaði gistinóttum um 6,9% á Suðurnesjum, 4,4% á Austurlandi og 4,1% á höfuðborgarsvæðinu.

Framboð hótelherbergja í nóvember jókst um 1,2% miðað við sama tíma árið 2023 og var aukningin mest á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem framboðið jókst um 11%. Þá var um 5,7% aukning á herbergjaframboði á Suðurlandi en litlar breytingar á höfuðborgarsvæðinu (1,9%) og á Suðurnesjum (0,4%). Framboð herbergja dróst aftur á móti töluvert saman á Austurlandi, eða um 29%, og á Norðurlandi um 7,0%.

Herbergjanýting jókst í öllum landshlutum og mældist aukningin um 3,1 prósentustig á landinu í heild sinni. Mest var aukningin á Austurlandi eða 11,6 prósentustig en því næst var um 6,0 prósentustiga hækkun á Suðurnesjum og 5,8 prósentustiga hækkun á Norðurlandi. Nýting herbergja breyttist minna í öðrum landshlutum eða um 1,3 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu, 2,0 prósentustig á Suðurlandi og 1,4 prósentustig á Vesturlandi og Vestfjörðum.

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í nóvember rúmlega 548.000. Þetta var 6,4% aukning miðað við sama tíma árið 2023 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 515.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða rúmlega 448.000 (384.000 á hótelum og 64.000 á gistiheimilum) en um 100.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.). Á fyrstu 11 mánuðum ársins voru uppsafnaðar gistinætur tæplega 9,1 milljón sem jafnframt var 0,2% lægra en á sama tíma fyrir ári síðan.

Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Unnið er að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur og er því ekki unnt að birta sundurliðun á fjölda gistinátta eftir þjóðerni að svo stöddu. Á meðan unnið er að frekari skoðun á gögnunum verður því tölfræði um gistinætur ekki birt eftir þjóðerni gesta. Rétt er þó að geta þess að ekki er ástæða til að véfengja heildarfjölda gistinátta.

Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni er sömuleiðis ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í nóvember.

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2024 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir nóvember 2024.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.