FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. NÓVEMBER 2020

Heildarfjöldi greiddra gistinátta í október síðastliðnum dróst saman um 91% samanborið við október 2019. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 91%, um 86% á gistiheimilum og um 88% á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.). Þar sem landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands liggur niðri vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli var ekki unnt að áætla fjölda erlendra gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður en þær voru um það bil 123.000 í október í fyrra.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 69.000 í október en þær voru um 779.000 í sama mánuði árið áður. Um 65% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 45.000, en um 35% á erlenda gesti eða um 24.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 52.000, þar af 38.800 á hótelum.

Framboð hótelherbergja á landinu minnkaði um 33% frá október 2019. Herbergjanýting á hótelum var 10,9% og dróst saman um 58 prósentustig frá fyrra ári.

Mikill samdráttur í hótelgistingu var á milli ára í öllum landshlutum en mestur á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fækkaði úr 225.200 í 14.000 á milli ára eða um 94%. Á sama tíma dróst framboð hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu saman um 43% á milli ára um leið og herbergjanýting féll um 67 prósentustig á milli ára og var 10,2% í október síðastliðnum.

Framboð og nýting hótelherbergja í október
  Herbergjafjöldi á hótelum í október Herbergjanýting hótela í október
2019 2020 % 2019 2020 prst
Alls11.2147.493-33,2%68,5%10,9%-57,6
Höfuðborgarsvæði5.3493.032-43,3%77,5%10,2%-67,4
Suðurnes956853-10,8%70,3%19,3%-51,1
Vesturland og Vestfirðir905629-30,5%46,5%11,9%-34,5
Norðurland1.219874-28,3%51,2%11,8%-39,4
Austurland441251-43,1%48,4%12,9%-35,5
Suðurland2.3441.854-20,9%68,3%7,2%-61,1

Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum í október drógust saman um 97% á milli ára en íslenskum gistinóttum fækkaði um 32%. Gistinætur Íslendinga voru 27.000, eða 70% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 11.800 eða 30%.

Gistinætur á hótelum
  Október   Nóvember-október  
2019 2020 % 2018-2019 2019-2020 %
Alls418.60538.778-914.505.4712.080.110-54
Höfuðborgarsvæði225.17214.033-942.499.1151.127.470-55
Suðurnes38.9126.826-82392.146156.237-60
Vesturland og Vestfirðir23.1854.042-83244.007137.430-44
Norðurland30.4915.342-82339.418189.437-44
Austurland11.9081.381-88116.19660.837-48
Suðurland88.9377.154-92914.589408.699-55
Þjóðerni
Íslendingar39.63926.998-32431.130578.91534
Erlendir gestir378.96611.780-974.074.3411.501.195-63

Á 12 mánaða tímabili, frá nóvember 2019 til október 2020, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 2.080.000 sem er 54% fækkun miðað við sama tímabil árið áður.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Fáar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli koma sem stendur í veg fyrir öflun gagna fyrir landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands og liggur hún því niðri þar til aðstæður breytast. Á meðan eru ekki birtar áætlaðar tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir árið 2020 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela en fyrir þær eru bráðabirgðatölur fyrir október 2020. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir í lok árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.