FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 29. OKTÓBER 2021

Greiddar gistinætur á öllum tegundum gististaða í september 2021 tæplega fimmfölduðust samanborið við september árið á undan. Þar af tæplega sexfölduðust þær á hótelum og fjórfölduðust á gistiheimilum og öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum o.s.frv.). Í samanburði við september 2019 hefur gistinóttum hins vegar fækkað um 15%. Þar af nemur fækkunin um 16% á hótelum, 12% á gistiheimilum og 16% á öðrum tegundum gististaða.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 698.000 í september en þær voru um 143.000 í sama mánuði árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 22% gistinátta eða um 156.000 en voru 85.000 í fyrra. Um 78% gistinátta voru erlendar eða um 542.000 en voru 58.000 fyrir ári síðan. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 499.000 (þar af 365.200 á hótelum) og um 199.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum o.s.frv.).

Framboð hótelherbergja í september jókst um 33% frá september 2020. Herbergjanýting á hótelum var 64,5% og jókst um 48,4 prósentustig frá fyrra ári.

Gistinætur á hótelum í september voru 365.200 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinætur meira en sjöfölduðust og á Suðurlandi þar sem þær tæplega sexfölduðust.

Gistinætur, framboð og nýting á hótelum
  September Október - september
Gistinætur á hótelum20202021%2019-20202020-2021%
Alls63.601365.238474%2.459.9371.731.013-30%
Höfuðborgarsvæði21.251159.011648%1.338.609703.217-47%
Suðurnes7.15435.168392%188.323164.559-13%
Vesturland og Vestfirðir7.23430.584323%156.573154.327-1%
Norðurland10.78242.730296%214.586243.79014%
Austurland3.01314.959396%71.36470.377-1%
Suðurland14.16782.786484%490.482394.743-20%
Þjóðerni
Íslendingar47.15397.907108%591.556687.65916%
Erlendir gestir16.448267.3311525%1.868.3811.043.354-44%
 
  Herbergjafjöldi á hótelum í september Herbergjanýting hótela í september
Framboð og nýting hótelherbergja20202021%20202021prst
Alls8.10010.79333%16,1%64,5%48,4
Höfuðborgarsvæði3.2354.91252%13,8%63,7%49,9
Suðurnes68499245%26,0%65,0%38,9
Vesturland og Vestfirðir80390913%16,5%60,5%43,9
Norðurland1.0151.24022%20,8%67,5%46,7
Austurland34743927%18,6%65,2%46,6
Suðurland2.0162.30114%13,5%65,9%52,4

Gistinætur Íslendinga voru 97.900, eða 27% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 267.000 (73%).

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2020 til september 2021, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 1.731.000 sem er 30% fækkun frá sama tímabili ári áður. Mest var fækkunin á höfuðborgarsvæðinu eða 47%. Aukning var um 14% á Norðurlandi á sama tímabili.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands fór aftur af stað í júní eftir nokkurt hlé. Í undirbúningi er að endurmeta aðferðafræði við áætlun gistinátta utan hefðbundins gistináttamarkaðar og er ráðgert að taka upp áætlun á fjölda gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður að nýju að áliðnum komandi vetri.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir september 2021. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.