FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. OKTÓBER 2024

Gistinætur á hótelum í september voru tæplega 512.600 á landsvísu eða um 1,3% færri en á sama tíma árið 2023 þegar þær voru 519.300. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi (3,7%) og höfuðborgarsvæðinu þar sem þær stóðu í stað á milli ára. Mest var fækkunin á Austurlandi (-20,5%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (-10,4%) en töluverð fækkun var einnig á Suðurnesjum (-4,6%) og á Norðurlandi (-3,4%).

Samdráttinn mátti nær alfarið rekja til fækkunar á gistinóttum erlendra ferðamanna en alls töldu þær um 419.400 (82% af gistinóttum hótela) sem var 3,4% fækkun miðað við fyrra ár. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru hins vegar tæplega 93.200, eða 18% gistinótta, og fjölgaði þeim nokkuð frá fyrra ári eða um 9,7%.

Framboð hótelherbergja í september jókst um 3,0% miðað við sama tíma árið 2023. Mest jókst fjöldi herbergja á Suðurlandi eða um 9,1% auk þess sem 3,9% aukning var á Vesturlandi og Vestfjörðum. Herbergjanýting dróst aftur á móti saman í öllum landshlutum og mældist samdrátturinn um 3,0 prósentustig á landinu í heild sinni. Þar af dróst nýting herbergja saman um 14,3 prósentustig á Austurlandi og 7,5 prósentustig á Vesturlandi og Vestfjörðum. Herbergjanýting á höfuðborgarsvæðinu var nær óbreytt en dróst þó lítillega saman um 0,3 prósentustig.

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinótta í september ríflega 1.017.000. Þar af voru gistinætur á hótelum og gistiheimilum rúmlega 653.000 og gistinætur á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæði, orlofshús, o.s.frv.) um 364.000. Þrátt fyrir samdrátt í gistinóttum hótela jókst heildarfjöldi gistinótta um 4,1% miðað við sama tíma árið 2023 en þá var fjöldinn rúmlega 977.000. Fjölgun ferðamanna á öðrum tegundum gististaða vó því upp á móti fækkun gistinótta á hótelum í september.

Heilt á litið fjölgaði þar með gistinóttum erlendra ferðamanna á öllum gististöðum um alls 2,8% frá fyrra ári og voru þær rúmlega 837.000 eða 82% allra gistinótta. Þá fjölgaði gistinóttum Íslendinga einnig um 10,3% á milli ára og töldu rúmlega 180.000 (18% allra gistinótta).

Óskráðar gistinætur
Áætlað er að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í september hafi verið um 120.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 11.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinótta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 20.000.

Samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu fór fram endurskoðun á talnaefni í Landamærarannsókn um ferðaþjónustuna í ágúst og því var ekki unnt að birta staðfestar tölur fyrir ágústmánuð 2024 við síðustu birtingu. Samkvæmt nýjum áætlunum Hagstofunnar voru óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu um 180.000 í ágúst en 10.000 hjá vinum og ættingjum og 10.000 í húsbílum.

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2024 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir september 2024.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.