FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. OKTÓBER 2007


Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði um 11% milli ára
Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 181.500 en voru 163.800 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 17.700 nætur eða tæplega 11%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem fækkun gistinátta nam 1% og á Austurlandi þar sem fjöldi gistinátta stóð í stað milli ára.  Aukningin var hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fjölgaði um tæp 15%, úr 95.100 í 109.300 milli ára.  Á Norðurlandi nam aukningin rúmum 13%, en gistinætur þar fóru úr 17.600 í 20.000 milli ára.  Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, úr 23.200 í 24.600. 

Fjölgun gistinátta á hótelum í ágúst má bæði rekja til Íslendinga (20%) og útlendinga (10%).

Gistirými á hótelum í ágústmánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 4.049 í 4.568, 13% aukning og fjöldi rúma úr 8.157 í 9.359, 15% aukning.  Hótel sem opin voru í ágúst síðastliðnum voru 78 en 76 í sama mánuði árið 2006.

 

Gistinóttum á hótelum á fyrstu átta mánuðum ársins fjölgaði um 14% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins voru 942.400 en voru 825.900 sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum, mest á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um 16% á hvoru landsvæði um sig.  Aukningin nam 12% á Austurlandi, 11% á Suðurlandi og 8% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum.

Fjölgun gistinátta fyrstu átta mánuði ársins nær bæði til Íslendinga og útlendinga, 14% aukning.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 
 
Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.