FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. OKTÓBER 2008


Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði um tæp 2% milli ára

Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 189.300 en voru 186.100 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um tæp 2% milli ára. Fjölgun átti sér stað í öllum landshlutum nema á Höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi en þar eru gistinætur svipaðar milli ára. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um tæp 12%, þar fóru gistinætur úr 17.000 í 19.000.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, eða úr 10.700 í 11.400. Gistinóttum fjölgaði einnig á Suðurlandi um 2%, úr 27.300 í 27.800 milli ára. Á Höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 110.700 í 110.900 og á Norðurlandi voru gistinætur 20.400 miðað við 20.300 í ágúst 2007.

Gistinóttum á hótelum fyrstu átta mánuði ársins fjölgaði um rúm 2% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins voru 975.500 en voru 951.700 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um 10% og á höfuðborgarsvæðinu um rúm 1% milli ára. Gistinætur stóðu í stað eða fjölgaði á öðrum landsvæðum.

Gistinóttum íslendinga hefur fjölgað um tæp 8% fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2007. Gistinóttum útlendinga fjölgar um rúmt 1% milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.