FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 28. SEPTEMBER 2017

Gistinætur á hótelum í ágúst voru 457.600 sem er 2% aukning miðað við ágúst 2016. Um 53% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 243.600, sem er 2% aukning miðað við ágúst 2016. Gistinætur á Suðurnesjum voru 28.600 sem er 33% aukning frá fyrra ári, en á sama tíma jókst framboð herbergja á Suðurnesjum um 64%. Einnig fjölgaði gistinóttum á Vesturlandi og Vestfjörðum (4%) og á Suðurlandi (3%), en gistinóttum á hótelum fækkaði frá sama mánuði í fyrra á Norðurlandi (11%) og á Austurlandi (3%).

Flestar gistinætur í ágúst áttu Bandaríkjamenn með 129.200, svo Þjóðverjar með 57.800 og Bretar með 39.000, en íslenskar gistinætur í ágúst voru 32.100. Gistinætur erlendra gesta voru 93% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum, en þeim fjölgaði um 3% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 9%.

Á tólf mánaða tímabili frá september 2016 til ágúst 2017 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum 4.197.000 sem er 21% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

87% nýting herbergja á hótelum í ágúst 2017
Herbergjanýting í ágúst 2017 var 87,4%, sem er lækkun um rúm þrjú prósentustig frá ágúst 2016 þegar hún var 90,5%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,8%, mælt í fjölda herbergja. Nýtingin var best á höfuðborgarsvæðinu, eða um 89,4%.

Gistinætur á hótelum
  Ágúst   September–ágúst  
  2016 2017 % 2015–2016 2016–2017 %
             
Alls 447.158 457.609 2 3.460.915 4.197.140 21
Höfuðborgarsvæði 237.976 243.579 2 2.225.703 2.589.644 16
Suðurnes 21.446 28.570 33 164.120 290.291 77
Vesturland og Vestfirðir 28.206 29.217 4 158.911 178.650 12
Norðurland 49.964 44.337 -11 254.411 283.355 11
Austurland 22.698 22.011 -3 98.222 107.089 9
Suðurland 86.868 89.895 3 559.548 748.111 34
             
Íslendingar 35.322 32.108 -9 368.682 430.582 17
Erlendir gestir 411.836 425.501 3 3.092.233 3.766.558 22

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2017 eru bráðabirgðatölur. Um þessar mundir fer fram vinna við endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðernum ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta, en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna. Stefnt er á að ljúka þessari vinnu fyrir útgáfu endanlegra talna fyrir gistinætur á öllum tegundum gististaða fyrir árið 2017.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.