FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. JÚNÍ 2007


Gistinóttum á hótelum í apríl fjölgaði um 12% milli ára

Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 89.900 en voru 80.100 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 9.800 nætur eða rúm 12%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum.  Aukningin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um rúmlega helming, fóru úr 4.600 í 6.900 milli ára (51% aukning).  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 43%, úr 2.100 í 3.100.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fór gistináttafjöldinn úr 6.100 í 7.400 milli ára, sem er 20% aukning.  Gistinæturnar á höfuðborgarsvæðinu í apríl síðastliðnum voru 63.100 en voru 58.200 í sama mánuði árið 2006 sem er aukning um rúm 8%. Á Suðurlandi nam aukning gistinátta rúmum 5% en þær fóru úr 9.000 í 9.500 milli ára.

Fjölgun gistinátta á hótelum í apríl má bæði rekja til útlendinga (13%) og Íslendinga (11%).
Gistirými á hótelum í aprílmánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.710 í 4.125, 11% aukning og fjöldi rúma úr 7.501 í 8.348, 11% aukning.  Hótel sem opin voru í apríl síðastliðnum voru 73 en 74 í sama mánuði árið 2006.

 

Gistinóttum á hótelum á fyrsta ársþriðjungi fjölgaði um 17% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar, mars og apríl samanlögðum voru 293.200 en voru 250.000 fyrir sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um tæp 73%, úr 5.500 í 9.500.  Aukningin nam 24% á Norðurlandi, 17% á höfuðborgarsvæðinu, 15% á Suðurlandi og 6% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 22% og Íslendinga um 8%.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.