Gistinætur á hótelum í apríl eru svipaðar milli ára
Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 92.100 en voru 91.800 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða og á höfuðborgarsvæðinu, en í öðrum landshlutum varð fækkun milli ára.
Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 6.100 í 6.800 eða um rúm 10% miðað við apríl 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 65.000 í 66.800 eða um tæp 3% miðað við sama mánuð í fyrra.
Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Suðurlandi, úr 11.700 í 10.100 eða um 14%. Gistinóttum fækkaði einnig á Austurlandi úr 2.600 í 2.400 eða um tæp 9%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum um rúm 5%, voru 6.100 miðað við 6.400 í apríl 2008.
Fjölgun gistinátta á hótelum í apríl má aðallega rekja til útlendinga en gistinóttum þeirra fjölgaði um tæp 13% á meðan og gistinóttum Íslendinga fækkaði um 24% miðað við apríl 2008.
Gistinóttum á hótelum fyrstu fjóra mánuði ársins fækkaði um rúm 2% milli ára
Gistinætur fyrstu fjóra mánuði ársins voru 304.100 en voru 310.800 á sama tímabili 2008. Fjölgun varð á Suðurlandi um rúm 6% og á Norðurlandi um tæp 2%. Fækkun varð á öllum öðrum landsvæðum, mest á Austurlandi eða um rúm 28%.
Fyrstu fjóra mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 17% á meðan gistinóttum útlendinga fjölgar um tæp 5% miðað við sama tímabil 2008.
Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.