FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. JÚNÍ 2010


Gistinóttum fækkar um 8% í apríl 
Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 85.600 en voru 93.100 í sama mánuði árið 2009.

Fækkun gistinátta nær til allra landsvæða nema Norðurlands og Suðurnesja en þar fjölgaði gistinóttum milli ára. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði gistinóttum um 26%, voru 2.300 samanborið við 3.100 í apríl 2009. Á Austurlandi fækkaði  gistinóttum úr 2.300 í 1.900 og á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 67.400 í 60.600 eða um 10% miðað við apríl 2009. Á Suðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára eða um 10.000 en á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum á milli ára, voru 7.000 samanborið við 6.500 í apríl 2009. Gistinóttum fjölgaði einnig á Suðurnesjum, voru 3.800 samanborið við 3.600 í apríl 2009. 

Fækkun gistinátta á hótelum í apríl er eingöngu hægt að rekja til erlendra gesta, en gistinóttum þeirra fækkaði um 11% miðað við apríl 2009 á meðan gistinætur  Íslendinga eru svipaðar milli ára.


Gistinóttum á hótelum fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði um 2% milli ára
Gistinætur fyrstu fjóra mánuði ársins voru 311.300 en voru 305.100 á sama tímabili 2009.  Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 12%, á Suðurlandi um 6% og um 2% á Höfuðborgarsvæðinu samanborið við fyrsta ársþriðjung 2009. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á Vesturlandi og Vestfjörðum um 14%.

Fyrstu fjóra mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 1% á meðan gistinóttum útlendinga fjölgar um rúm 3% miðað við sama tímabil 2009.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.