FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. FEBRÚAR 2008


Gistinóttum á hótelum í desember fjölgaði um rúmt 1% milli ára
Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 54.200 en voru 53.600 í sama mánuði árið 2006. Gistinóttum hefur því fjölgað um rúmlega 1% á milli ára og er fjölgunin mest á Suðurlandi, Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Norðurlandi, úr 1.800 í 2.200 eða um tæp 24%. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði í desember um tæp 20% á milli ára, úr 2.700 í 3.200. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum í desember um rúmt 1% frá fyrra ári, úr 43.300 í 43.700.

Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í desember hinsvegar um tæp 54% á milli ára, eða úr 1.300 í 600. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða voru 4500 gistinætur í desember 2007 sem er sami fjöldi og árið áður.

Fjölgun gistinátta á hótelum í desember má rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendingar fjölgar um 21%  en gistinóttum útlendinga fækkar um 8% á milli ára.


Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 11% árið 2007
Á árinu 2007 fjölgaði gistinóttum á hótelum um 11% frá fyrra ári, en fjöldi gistinátta fór úr 1.165.953 í 1.309.589 milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Hlutfallslega varð aukningin mest á Suðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um 32%. Á samanlögðu svæði  Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða nam aukningin 11%, höfuðborgarsvæðinu 9%, Austurlandi 5% og á Norðurlandi 2%. Fjölgun gistinátta á þessu tímabili má aðallega rekja til Íslendinga 19% og 11% til útlendinga.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.