FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. FEBRÚAR 2009


Gistinætur á hótelum í desember fjölgar um 10% milli ára
Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 58.800 og jukust um 10% frá desember 2007 þegar gistinætur voru 53.600. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 32% og á höfuðborgarsvæðinu um 13% miðað við desember 2007. Gistinóttum á Austurlandi fjölgaði úr rúmlega 400 í tæplega 600 og á Höfuðborgarsvæðinu úr 44.400 í 50.100. Á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum var fjöldi gistinátta svipaður og í desember 2007 en á Norðurlandi fækkaði gistinóttum í desember um 25% miðað við desember 2007, eða úr 2.000 í 1.500.

Þess má geta að á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða hafa bæst við í gagnagrunn gistináttatalningar gögn frá tveimur hótelum fyrir desember mánuð. Jafnframt hefur eitt hótel bæst við á Austurlandi fyrir sama tímabil.

Gistinóttum á hótelum fyrir árið 2008 fjölgaði um rúm 2% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrir árið 2008 voru 1.339.879 en voru 1.310.719 árið 2007. Fjölgun gistinátta varð á Suðurlandi um 13% og á Austurlandi um 7% milli ára. Á öðrum landsvæðum eru gistinætur svipaðar eða hafa dregist örlítið saman á milli ára.

Gistinóttum Íslendinga árið 2008 fækkar um rúm 2% frá árinu 2007 á meðan  gistinóttum útlendingar fjölgar um tæp 4% á milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.