FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. APRÍL 2004

Gistináttafjöldi á hótelum í febrúar eykst um 8,7% milli ára 
Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 49.910 en voru 45.940 árið 2003.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi (-12,6%) og Norðurlandi (-0,2%).  Á Austurlandi tvöfaldaðist fjöldi gistinátta á milli ára og fór úr 1.030 í 2.170.  Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fóru gistinæturnar úr 2.625 í 3.390 og fjölgaði þar með um 29,2%.  Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur í febrúar 38.500 en voru 36.000 í sama mánuði í fyrra, sem er 7,1% aukning.
       Tölur fyrir 2003 og 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.

Gistináttafjöldi á hótelum fyrstu tvo mánuði ársins 2004 voru 81.690 en þær voru 76.310 fyrir sama tímabil 2003, sem er 7% aukning milli ára.  Gistinætur Íslendinga aukast um 12,9% á tímabilinu en gistinætur útlendinga um 4,9%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.