FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. APRÍL 2007


Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 14% milli ára

Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 63.500 en voru 55.900 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 7.600 nætur eða tæplega 14%. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem þeim fækkaði um 9%, úr 5.600 í 5.100. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur ríflega tvöfölduðust, fóru úr 900 í 1.900 milli ára. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 2.000, úr 4.700 í 6.700 (42%). Á Norðurlandi nam fjölgunin 14% í febrúar, en fjöldi gistinátta fór úr 2.900 í 3.300 milli ára. Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru 46.400 í febrúar síðastliðnum en voru 41.700 í sama mánuði árið 2006 og fjölgaði þar með um tæplega 4.700 nætur, eða 11%.

Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6% og útlendinga um 17%, en gistinætur þeirra voru um 70% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í febrúar.

Gistirými á hótelum í febrúarmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.507 í 3.798, 8% aukning og fjöldi rúma úr 7.118 í 7.730, 9% aukning. Hótel sem opin voru í febrúar síðastliðnum voru 69 en 70 í sama mánuði árið 2006.

Gistinóttum á hótelum í janúar og febrúar fjölgaði um 18,5% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar og febrúar samanlögðum voru 114.100 en voru 96.300 fyrir sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistinæturnar rúmlega tvöfölduðust milli ára, úr 1.600 í 3.700. Aukningin nam 37% á Suðurlandi, 17% á höfuðborgarsvæðinu, 9% á Norðurlandi og 2% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu tvo mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 24% og Íslendinga um 7%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.