FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 08. APRÍL 2010


Gistinóttum fjölgaði um 6% í febrúar 
Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 77.100 en voru 72.800 í sama mánuði árið 2009. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi og Suðurnesjum.

Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Norðurlandi, úr 4.500 í 5.500 eða um  22% miðað við febrúar 2009. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 54.000 í 58.000 eða um 7% og á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 4%, voru 7.800 samanborið við 8.000 í febrúar 2009. Á Vesturlandi og Vestfjörðum var fjöldi gistinátta svipaður og í febrúar 2009 en á Suðurnesjum fækkaði gistinóttum um 17%, úr 4.100 í 3.400. Gistinóttum á Austurlandi fækkaði einnig á milli ára voru 700 samanborið við 800 í febrúar 2009.

Aukning gistinátta á hótelum í febrúar má aðallega rekja til erlendra gesta en gistinóttum þeirra fjölgaði um tæp 8% miðað við febrúar 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 1%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.