FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. APRÍL 2011


Gistinóttum fjölgaði um rúm 3% í febrúar 
Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 80.400 en voru 77.800 í sama mánuði árið 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 76% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í febrúar en gistinóttum þeirra fjölgaði um 5% á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 2% samanborið við febrúar 2010.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Norðurlandi og samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða. Á höfðuborgarsvæðinu voru 60.500 gistinætur í febrúar sem er 3% aukning frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru 10.100 gistinætur sem er 25% aukning samanborið við febrúar 2010. Gistinætur á Suðurnesjum voru 3.900 í febrúar sem er 15% aukning frá fyrra ári og á Austurlandi var fjöldi gistinátta 1.000 samanborið við 700 í febrúar 2010. Gistinætur á Norðurlandi voru 3.700 í febrúar og fækkaði um 33%. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 1.200 gistinætur í febrúar samanborið við 1.600 í febrúar á síðasta ári.  


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.