FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. MARS 2016

Gistinætur á hótelum í febrúar voru 267.900 sem er 37% aukning miðað við febrúar 2015. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 41% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgar um 15%.

Flestar gistinætur á hótelum í febrúar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 200.400 sem er 38% aukning miðað við febrúar 2015. Um 75% allra gistinátta var á höfuðborgarsvæðinu. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 35.600. Erlendir gestir með flestar gistinætur í febrúar voru; Bretar með 101.600, Bandaríkjamenn með 47.900 og Þjóðverjar með 17.700 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili mars 2015 til febrúar 2016 voru gistinætur á hótelum 2.963.500 sem er 25% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

63,5% nýting herbergja á hótelum í febrúar 2016
Nýting herbergja var best á höfuðborgarsvæðinu í febrúar eða um 86,2%.

Gistinætur á hótelum
  Febrúar   Mars - febrúar  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
             
Alls 195.145 267.890 37 2.379.858 2.963.505 25
Höfuðborgarsvæði 145.159 200.430 38 1.606.277 1.952.626 22
Suðurnes 8.918 9.876 11 112.647 137.934 22
Vesturland og Vestfirðir 5.794 7.121 23 103.915 124.248 20
Norðurland 7.588 9.021 19 166.853 190.833 14
Austurland 2.233 5.872 163 77.268 122.258 58
Suðurland 25.453 35.570 40 312.898 435.606 39
             
Íslendingar 24.937 28.678 15 339.776 329.166 -3
Erlendir gestir 170.208 239.212 41 2.040.082 2.634.339 29

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.