Gistinóttum á hótelum í janúar fjölgaði um rúm 12% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 57.200 en voru 51.000 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um 12% milli ára og er fjölgunin mest á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 39.400 í 47.700 eða um 21%. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði í janúar um rúm 8% á milli ára, úr 1.700 í 1.800. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um tæp 4% frá fyrra ári, úr 2.800 í 3.000.
Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í janúar hinsvegar um tæp 61% á milli ára, eða úr 1.800 í 700. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 25% milli ára, úr 5.200 í 3.900.
Fjölgun gistinátta á hótelum í janúar má aðallega rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en gistinóttum útlendinga fjölgaði um rúm 8% milli ára.
Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
Tölur fyrir 2008 eru bráðabirgðatölur.
Talnaefni