FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. SEPTEMBER 2008


Gistinóttum á hótelum í júlí fjölgaði um rúm 2% milli ára
Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 201.500 en voru 196.800 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um rúm 2% milli ára. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gistinætur stóðu í stað á  milli ára. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi, um 10% og á Suðurlandi um 8%. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 11.400 í 12.600 og á Suðurlandi úr 30.400 í 32.800 á milli ára.

Gistinóttum á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins fjölgaði um tæp 3% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins voru 786.000 en voru 766.000 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um 13% og á höfuðborgarsvæðinu um rúm 2% milli ára. Gistinætur stóðu í stað eða fækkaði á öðrum landsvæðum, mest var fækkunin á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða eða um 2%.

Fjölgun gistinátta fyrstu sjö mánuði ársins má aðallega rekja til Íslendinga, 9%. Gistinóttum útlendinga fjölgar um tæpt 1% á milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir árið 2008 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.