FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. SEPTEMBER 2009


Gistinætur á hótelum í júlí voru svipaðar milli ára
Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 203.400 en voru 202.200 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða og á Suðurlandi.

Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Norðurlandi, úr 22.300 í 25.000, eða um tæp 12%. Gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði úr 114.500 í 117.200 eða rúm 2%. Gistinætur á Austurlandi voru svipaðar milli ára, fóru úr 12.600 í 12.700. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 20.700 í 17.700 eða um 15%. Á Suðurlandi fækkaði gistinóttum úr 32.100 í 31.000 eða um 4%.

Gistinóttum Íslendinga á hótelum í júlí fækkaði um tæp 16% milli ára en gistinætur erlendra ríkisborgara jukust um 3%.


Gistinóttum á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins fækkaði um tæp 2% milli ára
Fjöldi gistinátta fyrstu sjö mánuði ársins voru 772.100 en voru 786.700 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi um 4% og á Norðurlandi um 6%. Á öllum öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum, mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um 12%. Fyrstu sjö mánuði ársins fækkaði gistinóttum Íslendinga um 14% en gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði um tæp 2% miðað við sama tímabil árið 2008.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.