FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. SEPTEMBER 2010


Gistinóttum fækkar um 5%
Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 193.500 en voru 203.200 í sama mánuði árið 2009.

Fækkun gistinátta í júlí nær til allra landsvæða nema Vesturlands, Vestfjarða og Suðurnesja. Gistinóttum fækkar mest á Norðurlandi úr 25.000 í 23.000 eða 8%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkar gistinóttum úr 117.200 í 109.600 um tæp 7% miðað við sama tímabil árið 2009. Á Austurlandi fækkar gistinóttum einnig, úr 12.500 í 11.900 eða um 5%. Á Suðurlandi fækkar gistinóttum úr 30.900 í 29.800 eða um rúm 3% samanborið við júlí 2009.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um rúmlega 12%, úr 9.400 í 10.500. Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum einnig fóru úr 8.400 í 8.700, 4% milli ára.

Fækkun gistinátta á hótelum í júlí nær bæði til erlendra gesta og Íslendinga. Gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði um 15% samanborið við júlí 2009 og  gistinóttum erlendra gesta fækkar um 4%.

Gistinóttum á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins fækkar um rúmt 1% milli ára
Gistinætur fyrstu sjö mánuði ársins voru 763.700 en voru 773.600 á sama tímabili 2009. Gistinóttum fjölgaði á Vesturlandi og Vestfjörðum ásamt Suðurlandi yfir þetta tímabil um tæp 3%. Fækkun á höfuðborgarsvæðinu er um 3% en gistinætur eru svipaðar í öðrum landshlutum miðað við sama tímabil 2009.

Fyrstu sjö mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 9% á meðan gistinóttum  útlendinga fjölgar um 1% miðað við sama tímabil 2009.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.