FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 02. SEPTEMBER 2011


Gistinóttum fjölgar um 16%   
Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 229.100 samanborið við 196.700 í júlí 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 88% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júlí og fjölgaði gistinóttum þeirra um 13% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júlí þar sem gistinætur voru ríflega 27 þúsund samanborið við 18.000 í júlí 2010 og fjölgar því um rúm 52% á milli ára.

Á höfðuborgarsvæðinu voru 135.800 gistinætur í júlí sem er 21% aukning frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru 35.350 gistinætur júlí sem er 16% fjölgun samanborið við júlí 2010. Á Norðurlandi voru gistinætur 25.760 í júlí, jukust um 12% og á Suðurnesjum voru 9.650 gistinætur sem er 11% aukning frá júlí 2010. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur 10.700 sem er 2% aukning milli ára. Á Austurlandi voru gistinætur í júlí svipaðar milli ára eða um 11.800.



Gistinóttum á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins fjölgaði um rúm 13% milli ára
Gistinætur fyrstu sjö mánuði ársins voru 874.000 en voru 775.400 á sama tímabili árið 2010. Gistinóttum fjölgaði milli ára á Suðurnesjum um 18%, á höfuðborgarsvæðinu um 15%, á Suðurlandi um 10% á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða um 6% og á Austurlandi um 2%. Gistinætur á Norðurlandi eru svipaðar milli ára. Fyrstu sjö mánuði ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 11% og gistinóttum Íslendinga um 19%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.