Gistinætur á hótelum í júlí voru 441.500 sem er 22% aukning miðað við júlí 2015. Gistinætur erlendra gesta voru 93% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 23% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%.
Flestar gistinætur á hótelum í júlí voru á höfuðborgarsvæðinu eða 240.400 sem er 25% aukning miðað við júlí 2015. Um 54% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 68.600. Erlendir gestir með flestar gistinætur í júlí voru: Bandaríkjamenn með 102.400, Þjóðverjar með 82.000 og Bretar með 41.800 gistinætur.
Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2015 til júlí 2016 voru gistinætur á hótelum 3.303.500 sem er 28% aukning miðað við sama tímabil árið áður.
93,0% nýting herbergja á hótelum í júlí 2016
Nýting herbergja á hótelum í júlí var um eða yfir 90% á öllum landsvæðum.
Gistinætur á hótelum | ||||||
Júlí | Ágúst - júlí | |||||
2015 | 2016 | % | 2014-2015 | 2015-2016 | % | |
Alls | 361.145 | 441.508 | 22 | 2.574.441 | 3.303.503 | 28 |
Höfuðborgarsvæði | 192.985 | 240.379 | 25 | 1.690.608 | 2.155.432 | 27 |
Suðurnes | 16.673 | 20.449 | 23 | 126.175 | 148.992 | 18 |
Vesturland og Vestfirðir | 22.261 | 31.135 | 40 | 114.836 | 148.949 | 30 |
Norðurland | 35.890 | 47.493 | 32 | 175.870 | 237.563 | 35 |
Austurland | 25.703 | 33.415 | 30 | 97.363 | 142.588 | 46 |
Suðurland | 67.633 | 68.637 | 1 | 369.589 | 469.979 | 27 |
Íslendingar | 25.133 | 29.311 | 17 | 328.939 | 351.232 | 7 |
Erlendir gestir | 336.012 | 412.197 | 23 | 2.245.502 | 2.952.271 | 31 |
Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.