FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. ÁGÚST 2016

Gistinætur á hótelum í júlí voru 441.500 sem er 22% aukning miðað við júlí  2015. Gistinætur erlendra gesta voru 93% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 23% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%.

Flestar gistinætur á hótelum í júlí voru á höfuðborgarsvæðinu eða 240.400 sem er 25% aukning miðað við júlí 2015. Um 54% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 68.600. Erlendir gestir með flestar gistinætur í júlí voru: Bandaríkjamenn með 102.400, Þjóðverjar með 82.000 og Bretar með 41.800 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2015 til júlí 2016 voru gistinætur á hótelum 3.303.500 sem er 28% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

  

93,0% nýting herbergja á hótelum í júlí 2016
Nýting herbergja á hótelum í júlí var um eða yfir 90% á öllum landsvæðum.

Gistinætur á hótelum
  Júlí   Ágúst - júlí  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
             
Alls 361.145 441.508 22 2.574.441 3.303.503 28
Höfuðborgarsvæði 192.985 240.379 25 1.690.608 2.155.432 27
Suðurnes 16.673 20.449 23 126.175 148.992 18
Vesturland og Vestfirðir 22.261 31.135 40 114.836 148.949 30
Norðurland 35.890 47.493 32 175.870 237.563 35
Austurland 25.703 33.415 30 97.363 142.588 46
Suðurland 67.633 68.637 1 369.589 469.979 27
             
Íslendingar 25.133 29.311 17 328.939 351.232 7
Erlendir gestir 336.012 412.197 23 2.245.502 2.952.271 31

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.