FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. ÁGÚST 2007


Gistinóttum á hótelum í júní fjölgaði um 16% milli ára

Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 153.900 en voru 132.800 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 21.100 nætur eða 16%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem fækkunin nam rúmum 8% þegar fjöldinn fór úr 7.400 árið 2006 í 6.800 árið 2007.  Aukningin var hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fjölgaði um tæp 22%, úr 83.300 í 101.600 milli ára.  Á Norðurlandi nam aukningin tæpum 17%, en gistinætur þar fóru úr 12.800 í 15.000 milli ára.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um rúm 11%, úr 12.700 í 14.100.  Fjöldi gistinátta á Suðurlandi stóð nánast í stað milli ára og voru um 16.500 bæði árin.   

Fjölgun gistinátta á hótelum í júní má bæði rekja til útlendinga (18%) og Íslendinga (7%).
Gistirými á hótelum í júnímánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 4.301 í 4.363, 10% aukning og fjöldi rúma úr 8.109 í 8.920, 10% aukning.  Hótel sem opin voru í júní síðastliðnum voru 77 en 76 í sama mánuði árið 2006.

Gistinóttum á hótelum á fyrstu sex mánuðum ársins fjölgaði um 17% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu sex mánuði ársins samanlagða voru 564.300 en voru 484.300 fyrir sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um 23%.  Aukningin nam 20% á Norðurlandi, 17% á höfuðborgarsvæðinu, 12% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum og 11% á Suðurlandi.

Fjölgun gistinátta fyrstu sex mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 19% og Íslendinga um 9%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.