FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. JÚLÍ 2005


Gistinóttum á hótelum í maí fjölgaði um 5% milli ára
Gistinætur á hótelum í maí árið 2005 voru 86.680 en voru 82.550 árið 2004 (5%).  Hlutfallslega varð mesta aukningin á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 6.960 í 8.200 (18%). Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 3.070 í 3.470 (13%) milli ára og á Norðurlandi úr 6.600 í 7.320 (11%). Gistinætur á höfuðborgarsvæðinu voru 59.790 í maí síðastliðnum en voru 55.990 í sama mánuði árið á undan, sem er um 7% aukning. Á Suðurlandi fækkar gistinóttum hins vegar um fimmtung milli ára, úr 9.920 í maí árið 2004 í 7.900 í maí síðastliðnum.

Í maí árið 2005 voru gistinætur Íslendinga á hótelum 19.840 á móti 18.230 árið á undan, sem er um 9% aukning. Gistinóttum útlendinga á hótelum fjölgar hlutfallslega minna eða um 4% milli ára, úr 64.320 í maí árið 2004 í 66.840 í maí árið 2005.

Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið (í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann). 

Tölur fyrir 2005 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.