FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. JÚLÍ 2007


Gistinóttum á hótelum í maí fjölgaði um 14% milli ára
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 116.000 en voru 101.500 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 14.500 nætur eða rúm 14%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem fjöldinn stóð í stað milli ára, 4.300 nætur.  Aukningin var hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 2.000, úr 8.100 í 10.100 milli ára (26% aukning).  Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 17%, úr 7.600 í 8.900.  Á Suðurlandi fór gistináttafjöldinn úr 9.000 í 10.200 milli ára, sem er 14% aukning.  Gistinæturnar á höfuðborgarsvæðinu í maí síðastliðnum voru 83.400 en voru 72.600 í sama mánuði árið 2006 sem er aukning um 13,5%.

Fjölgun gistinátta á hótelum í maí má bæði rekja til Íslendinga (24%) og útlendinga (12%).
Gistirými á hótelum í maímánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.790 í 4.390, 15% aukning og fjöldi rúma úr 7.654 í 8.917, 16% aukning.  Hótel sem opin voru í maí síðastliðnum voru 78 en 75 í sama mánuði árið 2006.

 

Gistinóttum á hótelum á fyrstu fimm mánuðum ársins fjölgaði um 17% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar, mars, apríl og maí samanlögðum voru 410.700 en voru 351.500 fyrir sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um rúm 41%, úr 9.800 í 13.800.  Aukningin nam 21% á Norðurlandi, 17% á Suðurlandi, 16% á höfuðborgarsvæðinu og 13% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 20% og Íslendinga um 9%.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.