FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. JÚLÍ 2010


Gistinóttum fækkar um 10% í maí
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 105.100 en 117.000 í sama mánuði árið 2009.

Fækkun gistinátta nær til allra landsvæða nema Austurlands og Suðurlands en þar fjölgaði gistinóttum milli ára. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum um 17%, voru 8.200 samanborið við 9.800 í maí 2009. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði  gistinóttum úr 81.200 í 70.100 eða tæp 14% miðað við maí 2009. Á Vesturlandi og Vestfjörðum voru 3.500 gistinætur í maí sem er 5% minna en í maí 2009. Á Suðurnesjum voru 4.100 gistinætur í maí sem er litlu minna en árið áður. Gistinætur á Austurlandi voru 4.900 í maí og fjölgaði um 14% samanborið við maí 2009. Gistinóttum fjölgaði einnig á Suðurlandi, voru 14.300 sem er tæplega 3% aukning miðað við sama tíma í fyrra.

Fækkun gistinátta á hótelum í maí nær bæði til Íslendinga og erlendra gesta, en gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði um 18% samanborið við maí 2009 en gistinóttum erlendra gesta fækkaði um 8%.

Gistinóttum á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins fækkaði um rúmt 1% milli ára
Gistinætur fyrstu fimm mánuði ársins voru 416.600 en 421.600 á sama tímabili 2009. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi um 5%, á Norðurlandi um 4% og um 3% á Austurlandi samanborið við sama tímabil 2009. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á Vesturlandi og Vestfjörðum um 12%.

Fyrstu fimm mánuði ársins fækkaði gistinóttum Íslendinga um 5% en gistinætur útlendinga eru svipaðar miðað við sama tímabil 2009.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2010 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.