Gistinætur á hótelum í mars voru 60.630 en voru 68.070 árið 2004 (-11%). Gistinóttum fækkaði í mars á öllum landsvæðum nema tveimur. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum úr 3.240 í 4.790 milli ára (48%) og á Norðurlandi úr 3.700 í 4.830 (31%). Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum um 10.760, sem er rúmlega 15% samdráttur milli ára. Á Austurlandi voru gistinæturnar í mars 1.230 en voru 2.020 árið á undan sem er 39% fækkun. Á Suðurlandi átti sér einnig stað samdráttur í mars, eða sem nemur 19% því gistinóttum fækkaði þar um 1.580 milli ára.
Fækkun gistinátta á hótelum í mars 2005 er aðallega vegna útlendinga (-15%), en gistinóttum Íslendinga fækkaði um 1%.
Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið (í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann). Fjöldi hótela í þessum flokki gististaða sem opnir voru í mars voru 68 talsins 2005, en voru 65 árið á undan.
Tölur fyrir 2004 og 2005 eru bráðabirgðatölur.