FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. MAÍ 2009


Gistinóttum á hótelum í mars fjölgaði um 2% milli ára
Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 84.700 en voru 83.000 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu en í öðrum landshlutum varð fækkun milli ára.

Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi, úr 8.900 í 11.300 eða um tæp 28%  miðað við mars 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 60.100 í 61.400 eða um rúm 2% miðað við sama mánuð í fyrra.

Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 6.600 í 5.100 eða um 23%. Gistinóttum fækkaði einnig á Austurlandi úr 2.100 í 1.700 eða um tæp 18%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum um tæp 4% , voru 5.100 miðað við 5.300 í mars 2008.

Fjölgun gistinátta á hótelum í mars má aðallega rekja til Íslendinga en gistinóttum þeirra fjölgaði um tæp 4% á meðan og gistinóttum útlendinga fjölgaði um rúmt 1% miðað við mars 2008.

Gistinóttum á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins fækkaði um rúm 3% milli ára
Gistinætur fyrstu þrjá mánuði ársins voru 212.200 en voru 219.000 á sama tímabili 2008.  Fjölgun varð á Suðurlandi um tæp 30% og á Norðurlandi um tæp 6%. Fækkun varð á öllum öðrum landsvæðum, mest á Austurlandi eða um rúm 38%.

Fyrstu þrjá mánuði ársins fækkar gistinóttum íslendinga um tæp 14% á meðan gistinóttum útlendinga fjölgar um tæp 2% miðað við sama tímabil 2008.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.