FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. MAÍ 2010


Gistinóttum fjölgaði um 11% í mars 
Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 93.700 en voru 84.500 í sama mánuði árið 2009.

Fjölgun gistinátta nær til allra landsvæða en þeim fjölgaði hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 61.400 í 69.300 eða um 13% miðað við mars 2009. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 1.700 í 1.900 eða um 12%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um 10%, voru 1.600 samanborið við 1.800 í mars 2009. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 7% milli ára og fóru úr 11.200 í 11.900. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 2%, voru 5.100 samanborið við 5.300 í mars 2009. Gistinætur á Suðurnesjum eru svipaðar milli ára  um 3.500.

Aukning gistinátta á hótelum í mars er eingöngu hægt að rekja til erlendra gesta, en gistinóttum þeirra fjölgaði um rúm 18% miðað við mars 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 5%.


Gistinóttum á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgaði um rúm 6% milli ára
Gistinætur fyrstu þrjá mánuði ársins voru 225.500 en voru 212.000 á sama tímabili 2009.  Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 14%, á Suðurlandi um 9% og um 7% á Höfuðborgarsvæðinu samanborið við fyrsta ársfjórðung 2009. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á Suðurnesjum  um 8%.
Fyrstu þrjá mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 2% á meðan gistinóttum útlendinga fjölgar um rúm 9% miðað við sama tímabil 2009.

 


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.