Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 694.000 í mars síðastliðnum, en þær voru um 719.000 í sama mánuði fyrra árs. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 444.000, gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru um 116.000 og um 134.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Fjöldi greiddra gistinátta í mars dróst því saman um 3,4% milli ára, þar af var 5,5% samdráttur á hótelum og gistiheimilum, 3,3% fækkun á öðrum tegundum gististaða og 3,9% aukning á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður. Einnig voru gistinætur erlendra ferðamanna um 4.000 í bílum utan tjaldsvæða og um 18.000 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu.

Hagstofan birtir nú einnig áætlaðar tölur um fjölda gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í febrúar 2019. Samkvæmt þeim var fjöldi erlendra gistinátta á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður um 118.000, sem er 2,6% aukning frá febrúar 2018. Áætlaður fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða í febrúar var um 3.000 og um 14.000 erlendar gistinætur voru hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti o.þ.h. Áætlaðar tölur um fjölda gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af frekari upplýsingum um veltu samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum, framboð og nýtingu staða sem miðla gistingu gegnum Airbnb.

Greiddar gistinætur ferðamanna 2017-2019

Hótelgistinætur dragast saman um 2% milli ára
Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 374.500, sem er 2% fækkun frá sama mánuði árið áður. Samdráttur var í fjölda gistinátta á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi, en fjölgun í öðrum landshlutum. Um 61% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 227.100.

Á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2018 til mars 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.431.800, sem er 3% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Gistinætur á hótelum
  Mars   Apríl-Mars  
  2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Alls381.803374.545-24.314.6504.431.7513
Höfuðborgarsvæði240.851227.128-62.603.5352.547.277-2
Suðurnes21.67024.50813295.050306.0144
Vesturland og Vestfirðir15.98018.56416196.926253.07129
Norðurland19.08322.07916308.309326.2436
Austurland4.4504.92511109.332103.748-5
Suðurland79.76977.341-3801.498895.39812
Þjóðerni
Íslendingar45.28739.769-12413.406447.2538
Erlendir gestir336.516334.776-13.901.2443.984.4982

Herbergjanýting í mars 2019 var 65,6%, sem er lækkun um 3,9 prósentustig frá mars 2018 þegar hún var 69,5%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 4,3% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í mars var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 80,0%.

Framboð og nýting hótelherbergja
  Herbergjafjöldi á hótelum í mars Herbergjanýting hótela í mars
2018 2019 % 2018 2019 prst
Alls9.79110.2134,3%69,5%65,6%-3,9
Höfuðborgarsvæði5.0645.0940,6%84,6%80,0%-4,5
Suðurnes6346340,0%62,0%66,6%4,5
Vesturland og Vestfirðir68282020,2%42,1%40,7%-1,4
Norðurland9991.16116,2%35,3%36,8%1,5
Austurland3493490,0%23,1%26,2%3,1
Suðurland2.0632.1554,5%68,3%62,6%-5,7

Um 89% gistinátta á hótelum var skráð á erlenda ferðamenn, eða 334.800 sem er 1% færra en í mars 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (98.300), þar á eftir koma Bretar (82.400) og Þjóðverjar (23.300) en gistinætur Íslendinga voru 39.800.

Gistinætur á hótelum 2016-2019

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni