FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. JANÚAR 2008


Gistinóttum á hótelum í nóvember fjölgaði um tæp 4% milli ára
Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 75.100 en voru 72.400 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 2.700 nætur eða tæplega 4%.  Gistinóttum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega varð fjölgun mest á Norðurlandi, þar  nam hún rúmum 9%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 3.100 í 3.400 milli ára.  Á höfuðborgarsvæðinu var aukning gistinátta um 8%, þar fóru gistinætur úr 55.000 í 59.600. Aukning gistinátta á Suðurlandi nam 4% og fóru þær úr 5.000 í 5.300 milli ára. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í nóvember milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 2.700 í 1.200, 58%.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða var fækkun gistinátta um 13%, þar fækkaði gistinóttum úr 6.500 í 5.600.

Fjölgun gistinátta á hótelum í nóvember má rekja til Íslendinga, 15%, en gistinóttum útlendinga fækkað lítillega.

 

Gistinóttum á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins fjölgaði um 13% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.254.866 en voru 1.112.331 sama tímabil árið 2006.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum nema á Austurlandi, mest fjölgaði á Suðurlandi, 16%, og á höfuðborgarsvæðinu, 14%.  Aukningin nam 13% á Norðurlandi, 4% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum. Austurland helst óbreytt á milli ára. 

Fjölgun gistinátta fyrstu ellefu mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 19% og útlendinga, 11%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.