FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 08. JANÚAR 2009


Gistinætur á hótelum í nóvember fjölgar á milli ára
Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 77.300 og jukust um tæplega 2% frá nóvember 2007 þegar gistinætur voru 76.000. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi og Austurlandi eða um 30% miðað við nóvember 2007. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði úr 5.700 í 7.400 og á Austurlandi úr 1.100 í 1.500. Gistinóttum fjölgaði einnig um tæp 2% á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 5.600 í 5.700. Gistinóttum á höfðuborgarsvæðinu voru svipaðar á milli ára, fækkaði úr 60.100 í nóvember 2007 í 59.700 í nóvember 2008. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum í nóvember um 12% á milli ára eða úr 3.400 í 3.000.

Þess má geta að á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða hafa bæst við í gagnagrunn gistináttatalningar gögn frá tveimur hótelum fyrir nóvember mánuð. 

Gistinóttum á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins fjölgaði um tæp 2% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.276.910 en voru 1.257.082 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um 13% og á Austurlandi um 7% milli ára. Gistinætur eru svipaðar eða hafa dregist örlítið saman á öðrum landsvæðum.

Gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um tæpt 1% fyrstu ellefu mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2007. Gistinóttum útlendinga fjölgar um rúm 2% milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.