FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. JANÚAR 2010


Gistinóttum á hótelum í nóvember fækkar um rúm 7% milli ára
Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 71.800 en voru 77.500 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og Norðurlandi.

Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um 45% miðað við nóvember 2008, úr 1.500 í 800. Á höfuðborgarsvæðinu fóru gistinætur úr 60.600 í 54.600 sem er 10% samdráttur milli ára. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 5.700 í 5.400 eða um 6%.

Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi úr 6.700 í 8.000 eða um tæp 20%. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára eða um 3.000
 
Gistinóttum erlendra ríkisborgara fækkar um tæp 9% milli ára og gistinóttum Íslendinga fækkar einnig milli ára um 4%.

Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins eru svipaðar milli ára
Fjöldi gistinátta fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.278.300 en voru 1.281.000 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 7% og á Suðurlandi um 6%. Á öðrum landsvæðum fækkar gistinóttum eða eru svipaðar milli ára. Mest fækkar gistinóttum á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða eða um 11%.

Fyrstu ellefu mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 10% á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgar um tæp 3% miðað við sama tímabil árið 2008.

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.