FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. JANÚAR 2012


Gistinóttum fjölgar um 13%   
Gistinætur á hótelum í nóvember voru 79.500 samanborið við 70.400 í nóvember 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 73% af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 19% samanborið við nóvember 2010 á meðan fjöldi gistinátta Íslendinga var svipaður á milli ára.

Gistinætur á hótelum á Austurlandi voru ríflega 2.000 í nóvember og fjölgaði um 90% frá fyrra ári. Á Suðurnesjum voru gistinætur 4.300 í nóvember sem er 44% aukning frá fyrra ári. Gistinætur á hótelum höfuðborgarsvæðisins voru 62.000 eða 16% fleiri en í nóvember 2010. Á Norðurlandi voru 3.300 gistinætur í nóvember sem eru um 3% aukning frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fækkaði hinsvegar gistinóttum á milli ára, voru 1.400 samanborið við 1.800 í nóvember 2010.
 


Gistinóttum fjölgar um rúm 13% fyrstu ellefu mánuði ársins
Gistinætur á hótelum voru samtals 1.419.800 fyrstu ellefu mánuði ársins en voru 1.255.400 á sama tímabili árið 2010. Gistinóttum fjölgaði um 17% milli ára á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Á  Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 9%, á Norðurlandi um 6%, 4% á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða og um 3% á Suðurlandi.

Á fyrstu ellefu mánuðum ársins hefur gistinóttum erlendra hótelgesta fjölgað um 13% og gistinóttum Íslendinga um 15% samanborið við fyrri ár..

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.