FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 22. DESEMBER 2017

Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 304.000, sem er sami fjöldi og í nóvember í fyrra. Um 69% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 210.000, sem er 4% fækkun frá fyrra ári. Nokkur fjölgun varð á gistinóttum frá nóvember fyrra árs á Norðurlandi (15%), Suðurnesjum (12%) og Suðurlandi (10%).

Um 89% gistinátta voru skráðar á erlenda ferðamenn, en erlendum gistinóttum fækkaði um 1% frá nóvember í fyrra meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 7%. Bretar gistu flestar nætur (86.500), síðan Bandaríkjamenn (74.900) og Þjóðverjar (11.900), en gistinætur Íslendinga voru 33.800.

Á tólf mánaða tímabili, frá desember 2016 til nóvember 2017, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.251.000 sem er 13% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

63% nýting herbergja á hótelum í nóvember 2017
Herbergjanýting í nóvember 2017 var 62,9%, sem er lækkun um 5,0 prósentustig frá nóvember 2016 þegar hún var 67,9%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,1% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 80,5%.

Gistinætur á hótelum
  Nóvember   Desember–nóvember  
  2016 2017 % 2015–2016 2016–2017 %
             
Alls 303.831 304.035 0 3.761.142 4.251.190 13
Höfuðborgarsvæði 218.224 209.989 -4 2.380.914 2.598.145 9
Suðurnes 18.953 21.145 12 197.954 296.781 50
Vesturland og Vestfirðir 8.348 8.355 0 170.734 190.415 12
Norðurland 10.491 12.070 15 281.652 296.375 5
Austurland 2.960 2.962 0 107.520 108.185 1
Suðurland 44.855 49.514 10 622.368 761.289 22
             
Íslendingar 31.685 33.797 7 395.962 427.923 8
Erlendir gestir 272.146 270.238 -1 3.365.180 3.823.267 14

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2017 eru bráðabirgðatölur. Um þessar mundir fer fram vinna við endurskoðun á skiptingu gistinátta eftir þjóðerni ferðamanna. Þessi vinna hefur ekki áhrif á heildarfjölda gistinátta en gæti haft áhrif á hlutfall milli erlendra og innlendra ferðamanna. Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu fyrir útgáfu endanlegra talna fyrir gistinætur á öllum tegundum gististaða fyrir árið 2017.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.