Heildarfjöldi greiddra gistinátta í nóvember jókst um 4,4% samanborið við nóvember 2018. Gistinætur á hótelum jukust um 5,3% á meðan 2,3% samdráttur var á gistiheimilum. Á öðrum tegundum gististaða (farfuglaheimilum, íbúðagistingu o.s.frv.) jukust gistinætur um 16,8% en drógust saman um 8,4% á stöðum sem miðla í gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 572.000 í nóvember síðastliðnum, en þær voru um 547.800 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 381.800, þar af 323.000 á hótelum. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum o.þ.h. voru um 114.200 og um 76.000 á stöðum sem miðla gistingu í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

gisti1

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 5%
Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 323.000, sem er 5% aukning frá sama mánuði árið áður. Aukning var í öllum landshlutum en á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 3,6% og 8,6% á landsbyggðinni. Um 65% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 211.300.

Gistinætur á hótelum
  Nóvember   Desember-nóvember  
  2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Alls306.768323.03654.471.0984.432.879-1
Höfuðborgarsvæði203.886211.30742.602.2092.513.897-3
Suðurnes19.19520.7508309.572313.7361
Vesturland og Vestfirðir10.43512.75622244.458244.1200
Norðurland13.73315.67914316.642340.1527
Austurland2.5023.52041101.789117.21415
Suðurland57.01759.0244896.428903.7601
Þjóðerni
Íslendingar38.41441.3398456.621429.532-6
Erlendir gestir268.354281.69754.014.4774.003.3470

Á tólf mánaða tímabili, frá desember 2018 til nóvember 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.432.900, sem er 1% samdráttur miðað við sama tímabil árið áður.

gisti3

Um 87% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn, eða 281.700. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (78.500), þar á eftir komu Bretar (72.800) og Kínverjar (19.000) en gistinætur Íslendinga voru 41.300.

gisti2

Herbergjanýting á hótelum í nóvember 2019 var 57,4% og stendur í stað milli ára. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 6,6% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í nóvember var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 74,4%.

Framboð og nýting hótelherbergja í nóvember
  Herbergjafjöldi á hótelum í nóvember Herbergjanýting hótela í nóvember
2018 2019 % 2018 2019 prst
Alls10.10310.7666,6%57,5%57,4%-0,2
Höfuðborgarsvæði5.0695.3826,2%76,9%74,4%-2,6
Suðurnes62782932,2%58,1%46,1%-12,0
Vesturland og Vestfirðir7317573,6%26,6%32,6%6,0
Norðurland1.1041.1716,1%24,2%28,2%4,0
Austurland394360-8,6%12,4%20,2%7,8
Suðurland2.1782.2674,1%47,8%50,5%2,7

Samkvæmt áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands voru gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða um 5.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 17.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Þær aðferðir sem beitt er við áðurnefnda áætlun eru í þróun innan Hagstofu Íslands. Tölur sem birtar eru um ógreiddar gistinætur og gistinætur, sem miðlað er í gegnum vefsíður eru því bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af bættum upplýsingum og aðferðum. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni