FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. DESEMBER 2008


Gistinætur á hótelum í október fækkar á milli ára
Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 103.700 en voru 108.800 í sama mánuði árið 2007, sem er því tæplega 5% samdráttur milli ára. Á Höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 83.100 í 76.400 eða um 8%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum úr 6.400 í 5.100 eða um 20% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 1%, úr 7.400 í 7.300. Gistinóttum fjölgaði hinsvegar umtalsvert á Austurlandi og Suðurlandi í október miðað við október 2007. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi um tæp 35%, eða úr 2.100 í 2.900. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 9.800 í 12.100 milli ára eða um 24%. 

Þess má geta að á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða hafa bæst við í gagnagrunn gistináttatalningar gögn frá tveimur hótelum fyrir októbermánuð. 

Gistinóttum á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins fjölgaði um tæp 2% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins voru 1.199.500 en voru 1.181.200 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Austurlandi um 12% og á Suðurlandi um 7% milli ára. Gistinætur eru svipaðar eða hafa dregist örlítið saman á öðrum landsvæðum.

Gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um tæpt 1% fyrstu tíu mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2007. Gistinóttum útlendinga fjölgar um tæp 2% milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.