FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. DESEMBER 2009


Gistinóttum á hótelum í október fjölgar um rúm 2% milli ára
Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 106.300 en voru 104.000 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu en í öðrum landshlutum varð fækkun á milli ára.

Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi úr 11.200 í 12.700 eða um tæp 13%. Á höfuðborgarsvæðinu fóru gistinætur úr 77.400 í 81.300 sem er aukning um rúm 5%  milli ára.

Gistinóttum á Austurlandi fækkaði um 28% miðað við október 2008, úr 2.900 í 2.000. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum úr 5.100 í 3.800 eða um 25%. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 7.300 í 6.400 eða um tæp 13%.

Gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgar um 3% milli ára en gistinætur Íslendinga á hótelum í október eru svipaðar milli ára.

Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins eru svipaðar milli ára
Fjöldi gistinátta fyrstu tíu mánuði ársins voru 1.206.000 en voru 1.203.500 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 7% og á Suðurlandi um 6%. Á öðrum landsvæðum fækkar gistinóttum eða eru svipaðar milli ára. Mest fækkar gistinóttum á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða eða um 12%.

Fyrstu tíu mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 11% á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgar um rúm 3% miðað við sama tímabil árið 2008.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.