FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. NÓVEMBER 2005


Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði um rúm 13% milli ára
Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði um rúm 13% milli ára
Gistinætur á hótelum í september árið 2005 voru 92.900 en voru 81.900 árið 2004 (13,4% aukning). Hlutfallslega varð mesta aukningin á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 7.300 í 8.900 (22,8%). Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 10.900, úr 53.700 í 64.600 og fjölgaði þar með um 20% milli ára.  Í öðrum landshlutum fækkaði gistinóttum í september milli ára. Á Austurlandi nam samdrátturinn tæpum 12%, á Norðurlandi tæpum 7% og á Suðurlandi tæpum 6%.

Fjölgun gistinátta á hótelum í september árið 2005 er nánast eingöngu vegna útlendinga, en þær fóru úr 64.600 í 75.500 milli ára (16,4%). Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um tæpt 1%.

Í september sl. voru 75 hótel sem eru með opið allt árið en á sama tíma fyrir ári voru þau 70.  Fjöldi herbergja fór úr 3.480 í 3.748 og fjöldi rúma úr 7.014 í 7.626. Hótelum fjölgaði um tvö á höfuðborgarsvæðinu, tvö á Vesturlandi og eitt á Norðurlandi eystra.

Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið (í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann). 

Tölur fyrir 2005 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.