Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði um tæp 5% milli ára
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 121.400 en voru 116.100 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 5.300 nætur eða tæplega 5%. Gistinóttum fjölgaði eingöngu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Hlutfallslega varð meiri fjölgun á Suðurlandi þar sem hún nam tæpum 15%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 11.600 í 13.400 milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um tæp 8% en þar fór fjöldi gistinátta úr 77.900 í 83.800. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í september milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 5.600 í 4.200, 25%. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða nam fækkun gistinátta tæpum 9% þegar gistinætur fóru úr 10.500 í 9.600 milli ára. Á Norðurlandi var lítil breyting milli ára, eða um 1% samdráttur.
Fjölgun gistinátta á hótelum í september má aðeins rekja til Íslendinga (29%) því gistinóttum útlendinga fækkaði um rúmt 1%.
Gistinóttum á hótelum fyrstu níu mánuði ársins fjölgaði um 13% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu níu mánuði ársins voru 1.064.200 en voru 942.000 sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum, mest á höfuðborgarsvæðinu, 15% og á Norðurlandi, 14%. Aukningin nam 11% á Suðurlandi, 6% á Austurlandi og 5% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum.
Fjölgun gistinátta fyrstu níu mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 16% og útlendinga, 12%.
Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur.
Talnaefni