FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. NÓVEMBER 2009


Gistinóttum á hótelum í september fækkar um tæp 2% milli ára
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 120.500 en voru 122.500 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og á Höfuðborgarsvæðinu.

Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 11.200 í 8.600 eða um 23%. Gistinóttum á Austurlandi fækkaði um 6% miðað við september 2008, úr 5.000 í 4.700 og á Norðurlandi fækkaði gistinóttum úr 10.700 í 10.500 eða um tæp 2%. Gistinóttum fjölgaði á Suðurlandi úr 12.800 í 13.800 eða um tæp 8% og á Höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur svipaðar samanborið við september 2008 eða um 83.000.

Gistinóttum Íslendinga á hótelum í september fækkaði um 8% milli ára, en gistinætur erlendra ríkisborgara eru svipaðar milli ára.

Gistinóttum á hótelum fyrstu níu mánuði ársins eru svipaðar milli ára
Fjöldi gistinátta fyrstu níu mánuði ársins voru 1.100.400 en voru 1.099.600 á sama tímabili árið 2008. Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 8% og á Suðurlandi um 5%. Á öllum öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum, mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um 11%. Fyrstu níu mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 12% á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgar um rúm 3% miðað við sama tímabil árið 2008.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.